Lýsing
„Mikið vildi ég að við hefðum komið fyrr, það er svo margt sem hægt hefði verið að fyrirbyggja“.
kr. 88.000
„Mikið vildi ég að við hefðum komið fyrr, það er svo margt sem hægt hefði verið að fyrirbyggja“.
Það má læra ýmislegt um stjúptengsl og vera um leið betur undurbúin undir áskoranir stjúpfjölskyldunnar og bregðast við þeim á uppbyggilegan máta með því að sækja námskeið. Nú svo má læra hagnýt atriði til að vinda ofan af hlutum semn reynist oft flókið verkefni. Flestum finnst það ánægjulegt að eiga tíma með fólki í svipuðum sporum, hægt er að læra að takast á við hlutina á nýjan máta, miðla og fá stundum staðfestingu á að hlutirnir eru í góðu lagi.
Um 94% fráskilinna íslenskra foreldra töldu þörf á sértækri ráðgjöf og fræðslu um stjúptengsl. Þrátt fyrir margbreytileika stjúpfjölskyldna benda rannsóknir til að þær eigi margt sameignlegt. Algengt er að hlutverk stjúpforeldra vefjist fyrir þeim sjálfum og foreldrum sem eru óvissir um hvaða kröfur eigi eða megi gera til stjúpforeldra. Samskipti við núverandi maka sem og fyrrverandi maka (barnsföður/barnsmóður) valda víða streitu og álagi. Bæði börn og fullorðnir geta upplifað sig á jaðri fjölskyldunnar. Spurningar eins og hver á að borga fyrir hvern og hvern er hægt að biðja um aðstoð eru algengar, sem og hver má aga hvern?
Fjallað verður m.a. um:
Umsagnir þátttakenda
Kennslufyrirkomulag: Stutt erindi, verkefni, umræður, myndir og heimaverkefni.
Fjöldi þátttakenda: . Hópurinn er lokaður
Verð: 84.00o á par. (má skipta greiðslu. Fyrirspurn send á [email protected]). Námskeiðið er ekki endurgreitt nema að það falli niður vegna ónógrar þátttöku.
Leiðbeinandi er Valgerður Halldórsdóttir er félags- og fjölskylduráðgjafi, MA. Hún hefur einnig lokið BA prófi í stjórnmálafræði og kennslu – og uppeldisfræði til starfsréttinda og sáttamiðlun.
Hvenær og klukkan hvað? Námskeiðið er oftast haldið á höfuðborgarsvæðinu nema ef næg þátttaka fæst eru hægt að færa það út á land. Það er á föstudagskvöldi frá kl. 18 til 21, laugardagur 9 til 14.00 og síðan fimmtudagskvöld eftir tvær vikur frá . kl. 19.00 til 21.00. Alls 10 tímar.
Námskeiðið er alls 10 tímar. Flest stéttarfélög greiða niður námskeið fyrir sína félagsmenn og viðtöl við viðurkennda meðferðaraðila.
„Mikið vildi ég að við hefðum komið fyrr, það er svo margt sem hægt hefði verið að fyrirbyggja“.