Skip to main content

Skilmálar

Þegar valið er „Sótt í verslun“ í sendingarmáta skal gera ráð fyrir að pöntunin verði tilbúin til afgreiðslu í verslun 3-4 klst. síðar.

Skilmálar og fyrirvarar

VINSAMLEGA LESTU ÞESSA SKILMÁLA OG FYRIRVARA ÁÐUR EN ÞÚ NOTAR ÞESSA VEFSÍÐU. NOT ÞÍN AF ÞESSARI VEFSÍÐU STAÐFESTA SKILYRÐISLAUSTSAMÞYKKI ÞITT Á EFTIRFARANDI SKILMÁLUM OG FYRIRVÖRUM. EF ÞÚ ERT EKKI SAMÞYKKUR ÞESSUM SKILMÁLUM OG FYRIRVÖRUM ÞÁ SKALTU EKKI NOTA ÞESSA VEFSÍÐU.

  • Vörur, innihaldsefni og önnur atriði.
    Allt efni sem kynnt er og fjallað er um á þessari vefsíðu (þ.m.t. vörur og verð), www.stjuptengsl.is getur tekið breytingum án nokkurra fyrirvara eða tilkynninga. Eigandi þessarar vefsíðu, Vensl ehf., tekur skynsamlegar ákvarðanir í textavali og framsetningu þeirra vara og þjónustu sem í boði er á www.stjuptengsl.is. Það er á þína ábyrgð að leggja fram réttar persónuupplýsingar þegar þú átt viðskipti við Vensl ehf. Þegar þú verslar vörur og þjónustu af Vensl ehf. gefur þú til kynna að vörurnar verða notaðar skv. þeim leiðbeiningum og upplýsingum sem eru að finna á þeim. Öll misnotkun á vörum og þjónustu sem þú færð á vefsíðu www.stjuptengsl.is er algjörlega á þína ábyrgð.
  • Takmörk sendinga.
    Þegar pantað er, þá verður pöntunin send til heimilisfangsins sem uppgefið er á pöntuninni. Allar pantanir sem óskað er eftir heimsendingu á verða sendar með Íslandspósti. Öll vöruverð á www.stjuptengsl.is eru án sendingarkostnaðar. Þegar þú klárar pöntunina á vefsíðunni þá reiknar afgreiðslukerfið okkar sendingarkostnað út frá raunþyngd varanna (innihald og umbúðir) og bætir því við pöntunina. Sá kostnaður eru háður búsetu viðskiptavinar ásamt umfangi og þyngd pakkans. Eftir að pöntun fer frá Vensl ehf. til Íslandspósts liggur ábyrgðin hjá Íslandspóst. Ef sending glatast eða skemmist skal viðtakandi pöntunar hafa samband við Íslandspóst og krefjast endurgreiðslu eða fá bætur fyrir það tjón er orðið hefur eða endurgreiðslu. Vensl ehf. tekur ekki þóknun/gjald fyrir að þjónusta vefpantanir. Viðskiptavinir greiða einungis verð vöru ásamt sendingargjald skv. gjaldskrá Íslandspósts hverju sinni.
  • Greiðslu upplýsingar og sendingarmáti.
    Viðskiptavinum bjóðast fjórir greiðslumöguleikar, greitt með reiðufé í verslun Vensl ehf., millifærsla í gegnum heimabanka vegna póstsendingar, greiðsla með greiðslukorti í verslun Vensl ehf. og/eða vegna póstsendingar og Netgíró. Viðskiptavinir greiða ávallt pöntunina að fullu áður en varan er afgreidd í póst. Vensl ehf. sendir pakka heim að dyrum þar sem slík þjónusta er í boði hjá Íslandspósti. Annars er pakkinn sóttur á viðkomandi pósthúsi.
  • Afgreiðslufrestur og ófáanlegar vörur.
    Afgreiðslufrestur pantana sem berast í gegnum vefsíðu þessa er 1-2 virkir dagar eftir að pöntun og greiðsla berst. Berist pöntun um helgi eða á föstudegi þá lengist afgreiðslufrestur sem nemur 1 til 2 helgidögum. Viðskiptavinir eru hvattir til að senda staðfestingu á greiðslu pantana til stjuptengsl@stjuptengsl.is til að flýta fyrir afgreiðslu. Það verður ekki hjá því komist að vörur geta einstaka sinnum verið uppseldar. Komi það fyrir mun Vensl ehf. hafa samband við þann er leggur inn pöntunina og kynna honum aðra valkosti, hvenær varan kemur aftur eða endurgreiða honum uppselda vöru að fullu verði þess óskað. Vensl ehf. mun eftir bestu getu uppfæra vefsíðuna í samræmi við birgðarstöðu.
  • Réttar upplýsingar.
    Við reynum eftir bestu getu að tryggja að upplýsingarnar á www.stjuptengsl.is séu núgildandi, nákvæmar og réttar. Þrátt fyrir tilraunir okkar, þá geta upplýsingar á www.stjuptengsl.is einstaka sinnum verið rangar, ófullnægjandi eða úreltar. Sem dæmi, þá geta vörur á vefsíðunni verið uppseldar, geta verið með öðruvísi eða breytt innihaldsefni miðað við það sem tilgreint er á síðunni, eða geta verið á öðru verði en tilgreint er á vefsíðunni. Að auki, þá getum við breytt verðum og upplýsingum án nokkurs fyrirvara. Öll vöruverð eru háð gengi íslensku krónunnar, sendingarkostnaði, tollgjöldum og virðisaukaskatti, og geta því tekið breytingum all snarlega. Ef upplýsingar um þann er pantar vöru og þjónustu á www.stjuptengsl.is eru ófullnægjandi reynum við að hafa samband við viðkomandi til að hægt sé að afgreiða pöntunina. Takist það ekki verður pöntun ógild.
  • Notkun þessarar vefsíðu.
    Hönnun þessarar vefsíðu, texti, útlit, myndefni, upplýsingar, innihald og annað efni sem hægt er að afrita og niðurhala af þessari vefsíðu eru vernduð með lögum og má ekki nota eins og tilgreint er hér nema með skriflegu samþykkis Vensl ehf. Þú mátt ekki eiga við eða breyta því efni sem er að finna á þessari vefsíðu, með afritun eða niðurhali, hvorki í auglýsingar né fréttar eða auglýsingar tilgangi. Slíkt brýtur í bága við núgildandi lög og reglur.
  • Tenging við þessa vefsíðu.
    Að útbúa eða viðhalda tengingu við þessa vefsíðu af annarri vefsíðu án skriflegs samþykkis Vensl ehf. er bannað með öllu. Allar tengingar við þessa vefsíðu þurfa að fylgja lögum og reglugerðum..
  • ÁBYRGÐIR.
    AFNOT ÞÍN AF ÞESSARI VEFSÍÐU ER Á ÞÍNA ÁBYRGÐ. UPPLÝSINGAR, EFNI OG ÞJÓNUSTA SEM ER ÚTVEGAÐ Á ÞESSARI VEFSÍÐU ERU ÚTVEGUÐ EFTIR BESTU VITUND Vensl ehf. EFNI OG UPPLÝSINGAR ÞESSARAR VEFSÍÐU KANN AÐ VERA GAMALT OG Vensl ehf. HEFUR ENGAR SKYLDUR TIL AÐ KOMA MEÐ ÁBENDINGAR EÐA LEIÐRÉTTINGAR Á RÖNGU EFNI.

ALLAR VÖRUR OG ÞJÓNUSTA SEM AFGREIDDAR ERU Í GEGNUM ÞESSA VEFSÍÐU ERU Á ÁBYRGÐ FRAMLEIÐANDA ÞEIRRA, DREIFINGARAÐILA OG SÖLUAÐILA. Vensl ehf. BER ENGA ÁBYRGÐ Á FULLYRÐINGUM ÞEIRRA VARA SEM ERU Á VEFSÍÐUNNI, HUGSANLEGRA AUKAVERKANNA, MISNOTKUNNAR, RANGS VALS Á VÖRUM EÐA MISSKILNINGS SEM KANN AÐ VERÐA.

  • Breytingar á skilmálum og fyrirvörum.
    Vensl ehf. áskilur sér rétt til að breyta skilmálum og fyrirvörum hvenær sem er.
  • Uppsögn.
    Þú eða við (Vensl ehf..) getum framlengt eða sagt upp viðskiptareikning þínum eða afnot þín af þessari vefsíðu hvenær sem er, af einhverri ástæðu eða engri ástæðu. Þú berð sjálfur ábyrgð á þínum pöntunum og þeim greiðslum sem berast til okkar í gegnum þína pöntun.
  • Heilsutengdar upplýsingar.
    Upplýsingarnar á þessari vefsíðu eru einungis ætlaðar til að upplýsa og koma ekki í stað ráðgjafar lækna eða annarra heilsuráðgjafa. Þú ættir ekki að nota upplýsingar þessarar vefsíðu til að lækna eða greina heilsuvandamál eða sjúkdóma. Upplýsingar og fullyrðingar vara þeirra sem þú sérð á síðunni hafa ekki fengist staðfest af Matvælastofnun Íslands (MAST) né Lyfjastofnun Bandaríkjanna. Vörur á vefsíðu þessarri eru ekki ætlaðar að lækna, greina eða hindra sjúkdóma af nokkru tagi. Þér er ráðlagt að lesa allar upplýsingar á vöru áður en notkun hefst.
  • Vöruskil.
    Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan fæst ekki endurgreidd en boðið er upp á inneignarnótu í verslun Vensl ehf.
  • Varnarþing.
    Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Skilmálar þessir gilda frá 24. maí 2017.

Aðrar upplýsingar

  • Ef þú skilur ekki eitthvað af ofangreindu eða ef þú hefur spurningar eða ábendingar, þá vinsamlega hafðu samband við okkur á stjuptengsl@stjuptengsl.is

Yfirlýsing

  • Vensl ehf. virðir einkamál og áhyggjur viðskiptavina sinna. Þess vegna tökum við persónulegar upplýsingar eins og nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer sem trúnaðarupplýsingar.
  • Hverjir mega nota vefsíðuna.
    Vefsíðan er ekki ætluð til þess að lokka að einstaklinga undir 18 ára aldri. Við söfnum ekki né höldum utan um persónulegar upplýsingar einstaklinga undir 18 ára aldri. Ef þú ert undir 18 ára aldri þá hvetjum við þig til að senda okkur ekki persónulegar upplýsingar um þig. Flestar þær vörur sem eru að finna á vefsíðu okkar eru ekki ætlaðar fólki undir 18 ára aldri.
  • Póstlisti.
    Við viljum geta upplýst þig um þjónustu, útsölur, nýjar vörur og tilboð sem gætu gagnast þér. Á vefsíðunni getur þú skráð þig á póstlistann okkar til að fá sendan tölvupóst með slíkum upplýsingum.Vefsíða www.stjuptengsl.is er hýst hjá Allra Átta.

Instagram