Tilboð!

Stjúpuhittingur í Hafnarfirði 16. til 18. október 2026

Original price was: kr. 98.000.Current price is: kr. 84.000.

Viltu kynnast öðrum stjúpmæðrum, styrkja seigluna þína og finna gleðina í hlutverki sem getur bæði verið krefjandi og gefandi?   Þá er þessi ferð fyrir þig! Gefðu þér hlé frá amstri dagsins og taktu þátt í einstökum stjúpuhittingi í Hafnarfirði– þar sem fræðsla, stuðningur og skemmtileg samvera fléttast saman.

Flokkur:

Lýsing

Námskeiði er fyrir stjúpmæður, konur sem eiga maka, kærasta eða kærustu sem á barn eða börn úr öðru sambandi.

Helgarnámskeið 16. til 18. október 2026

  • Valgerður mun ræða um hlutverk stjúpmæðra og þær fjölbreyttu tilfinningar sem fylgja því. Margar konur eru óvissar um hvað sé viðeigandi að gera og segja, eða hvort tilfinningar þeirra séu réttmætar. Á námskeiðinu verður farið yfir algengar spurningar sem tengjast þessu hlutverki, til dæmis hvenær sé við hæfi að leiðbeina stjúpbörnum, hvernig megi styrkja tengsl við þau, bæta eigið andlegt jafnvægi, efla sambandið og draga úr áhrifum fyrrverandi maka.
  • Stjúpmæður upplifa oft skort á stuðningi, viðurkenningu og fræðslu, sem getur leitt til þess að þær finni fyrir stjórnleysi í lífi sínu. Á námskeiðinu verður fjallað um helstu áskoranir stjúpmæðra og hvað þær geta sjálfar haft áhrif á og mótað í eigin aðstæðum.
  • ​Hrefna leiðir okkur inn í heim jákvæðrar sálfræði þar sem við vinnum með seiglu, styrkleika og bjartsýni, prófum inngrip á eigin skinni og lærum að beina athyglinni að því sem raunverulega skiptir máli.

​Dagarnir samanstanda af:

  • Fyrirlestrum og hópavinnu.

  • Við byrjum föstudaginn 16. október kl. 16.00 og erum til 21.00 (fimm tímar – með matartíma)
  • Laugardagurinn 17. október byrjar kl. 9.00 og erum við til kl. 16.00 (7 tímar – með matartíma)
  • Sunnudaginn 18. október kl. 9.00 og ljúkum  námskeiðinu kl. 16.00 (7 tímar – með matartíma)

     Valgerður og Hrefna skipta dögunum á milli sín. Auk þess verður á milli „atriða“ valfrjáls þátttöku í hugleiðslu, hláturjóga og Qi gong.​​

Nánar um leiðbeinendur námskeiðsins: 

​​Valgerður Halldórsdóttir er félags- og fjölskylduráðgjafi, MA og ritstjóri stjuptengsl.is. Hún hefur alla ævi búið í einhverri útgáfu af stjúpfjölskyldu og er bæði  með persónulega reynslu – og faglega þekkingu á stjúptengslum.  Hún er m.a. menntaður félags- og fjölskylduráðgjafi og með sérfræðiviðurkenningu í fjölskylduráðgjöf.  Valgerður býður upp á ráðgjöf fyrir stjúpfjölskyldur og hefur haldið fjölmörg námskeið um stjúptengsl. Jafnframt hefur hún skrifað fjölda greina  og gaf út bókin “Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl (Forlagid.is).​

Hrefna Guðmundsdóttir  vinnu og félagssálfræðingur, MA. Ritstjóri hamingjuvisir.com. Einn af stofnendum og fyrsti formaður félags um jákvæða sálfræði. Framhaldsskólakennari og rak félagsmiðstöð um skeið. Með markþjálfunarréttindi og býður upp á sjálfseflandi námskeið m.a. fyrir einstaklinga í Virk og hjá Endurmenntun Háskólans á Akureyri. Er aðstoðarkennari í Jákvæðri leiðtogafærni og í áfanganum Stjórnað af list, í MA námi í Háskólanum á Bifröst. Munum krydda með hláturjóga og Qi gong undir berum himni. Höfundur að bókunum:

,,Why are Icelanders so Happy?” (2018) og ,,From Reykjavík to Penang, Stories of Love and Happiness” (2024).

vallyhrefna125.jpg
Hæg er að sækja um styrk hjá stéttarfélögum. Þeir sem óska eftir að skipta greiðslu hafa samband við Valgerði eða Hrefnu.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðunni hjá Heillandi heimi  og hjá leiðbeinendum námskeiðsins: Valgerði Halldórsdóttur  [email protected]   og   Hrefnu Guðmundsdóttur   [email protected]

​

 

 

 

Share