Lýsing
Námskeiðið er ætlað þeim sem lokið hafa námskeiðinu „Stjúptengsl, endurgerð fjölskyldusamskipta“ fyrir fagfólk og vilja dýpka sig á sviðinu með handleiðslu og þjálfun í ráðgjöf við stjúpfjölskyldur. Nemendur þurfa að vinna með fjölskyldur í starfi sínu á meðan námskeiðinu stendur.
Námskeiðið samanstendur af handleiðslu á málum er varða stjúpfjölskyldur og verklegri þjálfun í viðtölum og hópavinnu.
Kennsluáætlun miðast að mestu við hvern og einn nemanda:
- 5 tímar málahandleiðsla, bæði einstaklingshandleiðsla og í hóp.
- 5 tímar í viðtölum undir handleiðslu kennara ýmist á vinnustað nemanda eða hjá Stjúptengsl.