Lýsing
Af hverju ekki að gefa maka, börnum, systkinum, vinum, vinkonum, foreldrum eða hverjum þeim sem okkur þykir vænt um viðtal hjá fjölskylduráðgjafa? Það getur verið tilvalin brúðar-, jóla- eða tækifærisgjöf.
Viðtöl má nýta á margvíslegan máta s.s. til að læra og fræðast á persónulegan máta um stjúptengsl, foreldrasamvinnu, skilnað, sáttameðferð eða annað sem viðkomandi hefur áhuga á. Jafnframt til að ræða mál sem trufla samskipti fólks og hefur slæm áhrif á líðan þess með aðstoð þriðja aðila, eða fara yfir þann árangur sem náðst hefur og hvað megi læra af honum.
Í raun má ræða hvað sem er, en gott er að velja sér fagaðila hefur góða þekkingu á þeim málum sem um ræðir og að hann hafi starfsleyfi frá Landlækni.