Lýsing
Stjúpmóðurhlutverkið vefst fyrir mörgum, á sumum sviðum gengur vel en á öðrum reynir verulega á.Óvissa um hvað „eigi og megi“ t.d. þegar kemur að börnunum og fyrrverandi maka makans veldur oft streitu og kvíða í annars góðu sambandi. Á námskeiðinu verður stuttlega farið yfir helstu áskoranir stjúpmæðra og hvað getur hjálpað til að takast á við og mótað hlutverkið.
Leiðbeinandi: Valgerður Halldórsdóttir, félags- og fjölskylduráðgjafi, sáttamaður
Klukkan hvað: 18.00 til 21. 00
Staður: Zoom
Námskeiðið er ekki endurgreitt nema ef það er ónóg þátttaka.