Lýsing
Stjúpmóður getur t.d. þó maki sinn vera meira upptekinn af því að passa að börn sín úr fyrra sambandi, að þau upplifi sig ekki útundan, en að veita henni og nýfæddu barni þeirra stuðning, athygli og þann tíma sem þau þurfa á að halda. Makanum getur þótt stjúpforeldrið ekki sýna hlutverki hans sem föður/móður með börn úr öðru sambandi skilning og upplifað sig milli steins og sleggju sé fæðingin ekki undirbúin. Með góðum undirbúningi má komast hjá óþarfa árekstrum, gera tímann ánægjulegan og gefandi.
Á örnáskeiðinu verður stuttlega fjallað um helstu áskoranir í stjúpfjölskyldum vegna fæðingar barns og hvernig má koma á móts við ólíkar þarfir fjölskyldumeðlima og virkjað tengslanetið. Þetta er jafnframt tilvalið tækifæri til að fá alla þæa aðila sem verða parinu/foreldrinu innan handar í kringum fæðinguna.
- Klukkan hvað? 16.00 til 18.30
- Kostnaður: 22.000 kr. Með paraafslætti er það 35.000
- Leiðbeinandi: Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi, MA. Sérfræðingur í fjölskylduráðgjöf.