Stjúpfjölskyldur og skólinn: stillum saman strengi 5.11. til 6.11. 2026 EHÍ
Námskeiðið er haldið á vegum EHÍ og munu þær Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi og María Júlía Rúnarsdóttir lögfræðingur sjá um kennsluna.
Námskeiðið verður dagana 5. nóvember kl. 14:30 – 17:00 og 6. nóvember kl. 9:30 – 12:00
Á námskeiðinu verður fjallað stuttlega um helstu verkefni stjúpfjölskyldna. Áskoranir starfsfólks skóla og stöðu nemenda sem eiga tvö heimili. Jafnframt hvernig megi virkja betur bakland þeirra og auka öryggi starfsmanna í samskiptum við heimilin svo sem við undirbúning foreldrafunda og annarra viðburða í skóla. Þá er skoðað hvernig varast megi að ala óvart á ágreiningi milli heimila og óánægju foreldra, sem og stjúpforeldra sem oft á tíðum eru mikilvægir aðilar þegar kemur til dæmis að heimanámi barn og stuðningi við þau. Jafnframt verður farið í lagalegu hlið samstarfs heimila og skóla.
Námskeiðið er ætlað kennurum, skólastjórnendum, náms- og starfsráðgjöfum sem og öðru fagfólki innan skóla sem er í beinum samskiptum við börn og aðstandendur þeirra.
Námskeiðið er á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands, skráning fer fram á Stjúpfjölskyldur og skólinn: stillum saman strengi | Endurmenntun Háskóla Íslands