Stjúpuhittingur á Madeira 17. – 24. febrúar 2026

kr. 320.450

Viltu kynnast öðrum stjúpmæðrum, styrkja seigluna þína og finna gleðina í hlutverki sem getur bæði verið krefjandi og gefandi?   Þá er þessi ferð fyrir þig! Gefðu þér hlé frá amstri dagsins og taktu þátt í einstökum stjúpuhittingi á Madeira – þar sem fræðsla, stuðningur og skemmtileg samvera mætir stórbrotinni náttúru og hlýju sólinni.

Skráning og frekari upplýsingar um ferðina er að finna á Heillandi heimur

Lýsing

​Í þessari vikuferð sameinum við fræðslu, hvíld og skemmtun í einu fallegasta og litríkasta umhverfi Evrópu, Madeira.  Eyjan er þekkt fyrir stórbrotna náttúru, milda veðráttu, gróskumikla blómadýrð og fallegar strandlengjur sem bjóða upp á slökun og orku á sama tíma.

Leiðbeinendur námskeiðsins eru þær Valgerður og Hrefna.

​​Valgerður Halldórsdóttir er félags- og fjölskylduráðgjafi, MA og ritstjóri stjuptengsl.is. Hún hefur alla ævi búið í einhverri útgáfu af stjúpfjölskyldu og er bæði  með persónulega reynslu – og faglega þekkingu á stjúptengslum.  Hún er m.a. menntaður félags- og fjölskylduráðgjafi og með sérfræðiviðurkenningu í fjölskylduráðgjöf.  Valgerður býður upp á ráðgjöf fyrir stjúpfjölskyldur og hefur haldið fjölmörg námskeið um stjúptengsl. Jafnframt hefur hún skrifað fjölda greina  og gaf út bókin “Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl (Forlagid.is).​

Hrefna Guðmundsdóttir  vinnu og félagssálfræðingur, MA. Ritstjóri hamingjuvisir.com. Einn af stofnendum og fyrsti formaður félags um jákvæða sálfræði. Framhaldsskólakennari og rak félagsmiðstöð um skeið. Með markþjálfunarréttindi og býður upp á sjálfseflandi námskeið m.a. fyrir einstaklinga í Virk og hjá Endurmenntun Háskólans á Akureyri. Er aðstoðarkennari í Jákvæðri leiðtogafærni og í áfanganum Stjórnað af list, í MA námi í Háskólanum á Bifröst. Munum krydda með hláturjóga og Qi gong undir berum himni. Höfundur að bókunum:

,,Why are Icelanders so Happy?” (2018) og

,,From Reykjavík to Penang, Stories of Love and Happiness” (2024).

vallyhrefna125.jpg
vallyhrefna225.jpg

Fræðsla – gleði – slökun !

Ferðin er hugsuð bæði sem fræðslu og skemmtiferð. Hópurinn mun kynnast vel og fá hagnýt verkfæri til að vinna með. Við munum fá svigrúm til að kynnast menningu og afþreyingu á svæðinu eins og hverjum og einum hugnast í bland við að kynnast og upplifa saman.

Markmiðið er að skapa lifandi og skemmtilegt námskeið þar sem við nærum bæði sálina og eflum styrkinn sem býr innra með okkur öllum. Samvera, fræðsla og stuðningur hópsins gerir ferðina einstaka og vinkonubönd geta orðið til sem endast langt umfram þessa ferð.

🌿 Námskeiðið verður í 4 daga af vikunni.

Valgerður mun fjalla um hlutverk stjúpmæðra og margvíslegar tilfinningar tengdar hlutverkinu. Margar konur eru í vafa um hvað á og má,  jafnvel hvort  tilfinningar þeirra eigi rétt á sér. Á námskeiðinu verður fjallað um algengar spurningar sem tengjast hlutverkinu s.s. hvenær megi segja stjúpbörnum til? Hvað megi gera til að bæta tengsl við stjúpbörnin? Bæta eigin líðan? Sambandið? Minnka áhrif fyrrverandi?

Oft skortir stuðning, viðurkenningu og þekkingu sem gerir það að verkum að mörgum stjúpmæðrum finnst að þær hafi misst stjórn á lífi sínu. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu áskoranir stjúpmæðra og hvað sé í þeirra valdi að móta og hafa áhrif á.

Hrefna mun svo leiða ykkur inn í heim jákvæðrar sálfræði.

Á fjórum dögum fáum við hagnýta fræðslu, verkfæri og stuðning í öruggu umhverfi þar sem allir skilja og geta speglað sig hver í öðrum.

  • Valgerður fjallar um hlutverk stjúpmæðra, áskoranir og tilfinningar sem fylgja – og hvernig við getum bætt tengsl, samband og eigin líðan.

  • Hrefna leiðir okkur inn í heim jákvæðrar sálfræði þar sem við vinnum með seiglu, styrkleika og bjartsýni, prófum inngrip á eigin skinni og lærum að beina athyglinni að því sem raunverulega skiptir máli.

Dagarnir samanstanda af:

  • Fyrirlestrum og hópavinnu (alls 24 klukkustundir yfir 4 daga).

  • Valfrjálsri þátttöku í hugleiðslu, hláturjóga og Qi gong.

  • Frjálsum tíma til að kanna eyjuna, njóta menningar, strandlengja og náttúrufegurðar Madeira.

 

Skráning og frekari upplýsingar um ferðina er að finna á Heillandi heimur

VERÐ KR. 320.450, – á mann miðað við 2 fullorðna í herbergi

VERÐ KR. 411.250, –  á mann miðað við 1 fullorðinn í herber