Lýsing
Af hverju ekki að gefa maka, börnum, systkinum, vinum, vinkonum, foreldrum eða hverjum þeim sem okkur þykir vænt um viðtal hjá fjölskylduráðgjafa, nú eða námskeið? Það getur verið tilvalin brúðar-, jóla- eða tækifærisgjöf.
Viðtöl má nýta á margvíslegan máta s.s. til að læra og fræðast á persónulegan máta um stjúptengsl, foreldrasamvinnu, skilnað, sáttameðferð eða annað sem viðkomandi hefur áhuga á. Jafnframt til að ræða mál sem trufla samskipti fólks og hefur slæm áhrif á líðan þess með aðstoð þriðja aðila, eða fara yfir þann árangur sem náðst hefur og hvað megi læra af honum.
Í raun má ræða hvað sem er, en gott er að velja sér fagaðila hefur góða þekkingu á þeim málum sem um ræðir og að hann hafi starfsleyfi frá Landlækni.