Stjúpuhittingur 9. maí. til 6. júní 2023

kr. 55.000


Að hitta aðrar stjúpur í svipuðum sporum er bæði hjálplegt og skemmtilegt.  Æfingar fræðsla og umræður  í hóp um hið flókna hlutverk stjúpmóðurinnar eykur líkur á að hver og ein finni hlutverk sem hentar. Margar stjúpur hafa eignast á Stjúpuhittingi  sínar bestu trúnaðarvinkonur og stuðningsaðila í stjúpuhlutverkinu

Ath. Stjúpuhittingur er ætlaður konum sem hafa sótt örnámskeiðið „Hvert er hlutverk stúpmæðra?“ eða námskeiðum fyrir pör, bæði örnámskeiðum eða lengri námskeiðum.

Á námskeiðinu er fjallað m.a. um:

Hlutverk stjúpmæðra, samskipti við fyrrverandi maka/barnsmóður, mörk, verkaskiptingu, agamál, fjármál, samskipti í stjúpfjölskyldum, heimilisreglur og hvernig megi efla og nýta stuðningsnetið.

Um 80% stjúpmæðra hafa haldið áfram að hittast eftir að námskeiðinu lauk eða hafa hug á því að hittast næsta vetur. Allir hóparnir eru með lokaðan feisbúkkhóp – þar sem konurnar ræddu áfram sín á milli.

Kennslufyrirkomulag:  Stutt erindi, verkefni, umræður og heimaverkefni.

Fjöldi þátttakenda: Hópurinn er lokaður – hámark 6 til 8 konur

Leiðbeinandi er Valgerður Halldórsdóttir er félagsráðgjafi, MA. Hún hefur einnig lokið BA prófi í stjórnmálafræði og kennslu – og uppeldisfræði til starfsréttinda  og sáttamiðlun.

Hvenær og klukkan hvað?  

Námskeiðið er í sex vikur mánudagana 11.okt., 18.okt., 25.okt., 1. nóv.    8.nóv., og 15.nóv. frá kl. 18.00 til 20.00. Námskeiðið er 12. tímar.

Hvar? Merkurgata 2b, Hafnarfirði

Innifalið eru kaffiveitingar og kennsluefni. þátttakendur geta fengið hnetur og ávexti, en er annars alveg velkomið að taka með sér nesti.

Flest stéttarfélög greiða niður námskeið og viðtöl fyrir félagsmenn sína.

 

Lýsing

Umsagnir um Stjúpuhitting

„Það var gott að vita að ég ein ber ekki ábyrgðina á því hvernig gengur í fjölskyldunni“
„Mér fannst gott að fá það staðfest að ég var á réttri leið“
„Það var svo gaman að kynnast þessum konum í hópnum og finna hvað það var gott að geta tjáð sig um þessi mál án þess að eiga hættu á að vera dæmd“
„Að geta fengið góð ráð frá leiðbeinanda og konunum í sömu sporum. Ég er öruggari í minni stöðu og líður almennt betur“
„Litið um fyrirlestra heldur tekist á við raunveruleikann eins og hann birtist okkur í umræðum, maður lærði af vanda annarra. Auk þess veitti vellíðan að hafa tekið þátt í umræðu til að aðstoða aðra.Gott að fá fram mörg sjónarmið. Persónulegt og traust vekjandi umhverfi“

„Að fá skilning“

„Svo eigaðist ég vinkonur í svipaðri stöðu og ég sjálf. Við höfum verið að hittast löngu eftir að námskeiðinu lauk“