Fæðing barns í stjúpfjölskyldu örnámskeið 18. mai. 2023 á Zoom

kr. 22.000

Fæðing barns er venjulega fagnaðarefni í hvaða fjölskyldu sem er. Í stjúpfjölskyldum er sameignlega barnið oft nefnt „litli brúarsmiðurinn“  þar sem bæði stjúpbarn og stjúpforeldri eru bæði líffræðilega tengd barninu. Flestir eru meðvitaðir um að mikilvægi góðs undirbúnings fyrir fæðingu barns. Í stjúpfjölskyldum er hann ekki minna mikilvægur,  nema síður sé. Viðbótarverkefnin eru sérstök, þarfir oft ólíkar og stjúptengsl viðkvæm.

Sjá nánari lýsingu hér neðar..

Lýsing

Stjúpmóður getur t.d. þó maki sinn vera meira upptekinn af því að passa að börn sín úr fyrra sambandi upplifi sig ekki útundan,  en að veita henni og nýfæddu barni þeirra stuðning, athygli og þann tíma sem þau þurfa á að halda. Makanum getur þótt stjúpforeldrið ekki sýna hlutverki hans sem föður/móður með börn úr öðru sambandi skilning og upplifað sig milli steins og sleggju sé fæðingin ekki undirbúin. Með góðum undirbúningi má komast hjá óþarfa árekstrum, gera tímann ánægjulegann og gefandi.

Á örnáskeiðinu verður stuttlega fjallað um helstu áskoranir í stjúpfjölskyldum vegna fæðingar barns og hvernig má koma á móts við ólíkar þarfir fjölskyldumeðlima og virkjað tengslanetið.

  • Klukkan hvað?  frá kl. 18.00 til 21.00
  • Hvar? Zoom
  • Leiðbeinandi: Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi, MA